“Hvernig þeir búa til falleg kvæði um kærleikann og halda ræður um hann á mannamótum en um leið og þeir hverfa að hversdagsiðjunni er sem flestir menn afklæðist búningi hinna fínu orða og hundsi kærleikann eftir fremsta megni og hjari ástlausir lungann úr lífinu.”

Bergsveinn Birgisson

Bergsveinn Birgisson - “Hvernig þeir búa til falleg...” 1

Similar quotes

“Kvarta þeir ekki í borgunum yfir því að heura ekki til í heiminum, yfir að vera tilfinningalausir og sljóir og leita svölunar í fíkniefnum og framhjátökum; að eina spurningin snúist um það hvort þeir eigi nú að kála sér eða ekki. Eða þá bíða um nokkurt skeið. Er til eitthvað hræðilegra en að bíða eftir að lífið líði hjá? Í stað þess að taka til hendinni og draga að föngin. Og svo yrkja þeir ljóð og skrifa sögur um einsemdina og kuldann í borginni. Af hverju voru þeir yfir höfuð að fara úr sveitinni?”

Bergsveinn Birgisson
Read more

“Það er ósköp menningarsnautt að sjá inn á heimilin nú til dags þar sem hver hlutur er úr sinni heimsálfunni og oftlega vita menn ekki neitt um hvaðan hluturinn kemur. Og hver er munurinn á heimaunnum hlut og hinum úr verksmiðjunni? Annar hefur sál og hinn ekki, því hver sá sem vinnur hlut í höndum sér, skilur eftir brot af sjálfum sér í verki sínu.”

Bergsveinn Birgisson
Read more

“Mér hefði fundist allt mitt starf gersneytt merkingu og fundið leiðan hellast yfir mig og byrjað að drekka brennivín til að hafa ofan af fyrir sjálfum mér. Svoleiðis verða þeir í Reykjavík. Ég hef séð það af kvikmyndunum sem þeir búa til um fólkið á landsbyggðinni. Samfélagsmyndin sem skín í gegn samanstendur af illa innrættum þursum sem hafa það eitt fyrir stafni að berja á sínum nánustu og tjá sig í einsatkvæðisorðum.”

Bergsveinn Birgisson
Read more

“Og nú heldur hann þeir svensku séu ekki jafngáfaðir og hann. Ég skal segja þér: þeir eru gáfaðri en hann, þeir eru svo gáfaðir að einginn kraftur fær þá til að trúa því að það samsafn af lúsugum betlurum norðrí raskati, sem kallar sig íslendinga og nú eru bráðum allir dauðir guðisélof, hafi skrifað fornsögurnar.”

Halldór Kiljan Laxness
Read more

“Þannig virðist mér reglan heldur vera sú að fólk lifi að jafnaði í berhöggi við það sem það boðar, hvaða mynd svo sem kann að vera á því sem boðað er, sé það pólítísk stefna eða tilvistarspeki. Það er engu líkara en þeir sem tala um að grenna sig, sykri alltaf pönnsuna mest og verstu ruddarnir tali um "aðgát í næveru sálar"; þeir sem fordæma glæpinn harðast séu að jafnaði stærstu glæpamennirnir, kapítalisminn sem á að gera alla ríka-geri alla fátæka, og eins víst að frelsið sem mönnum er svo tíðrætt um núna eigi eftir að fera alla að þrælum.”

Bergsveinn Birgisson
Read more